19.07.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Anna Garðars og Hekla Pálma í Aftureldingu (Staðfest)

Anna Garðarsdóttir er komin í Aftureldingu. Hér er hún í leik með Val gegn Aftureldingu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir síðari hluta Pepsi-deildar kvenna því þær Hekla Pálmadóttir úr Breiðabliki og Anna Garðarsdóttir úr Val eru komnar til félagsins.
Hekla Pálmadóttir er 23 ára gamall varnarmaður sem kemur frá Breiðablik. Hún hefur komið við sögu í þremur af leikjum liðsins í sumar en gengur nú til liðs við Aftureldingu þar sem hún spilar þar til hún fer til náms í Bandaríkjunum.
Hekla hefur leikið 53 leiki í deild og bikar fyrir uppeldisfélag sitt, Breiðablik og hefur skorað í þeim þrjú mörk. Hún á að baki 20 leiki fyrir U19 og U17 ára landslið Íslands.
Anna Garðarsdóttir er miðjumaður sem kemur frá Val. Hún missti af síðustu leiktíð vegna meiðsla en hafði komið við sögu í einum leik í sumar þegar hún skiptir nú til Aftureldingar.
Anna er einnig 23 ára gömul. Hún hóf feril sinn árið 2003 með HK/Víkingi en gekk til liðs við Val fyrir tímabilið 2007. Hún hefur leikið 62 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 25 mörk. Hún var á láni hjá Aftureldingu síðari hluta sumarsins 2008 og skoraði þá eitt mark í átta leikjum.