19.07.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Kári Árnason til Aberdeen (Staðfest)

Kári Árnason er farinn í skosku deildina.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Árnason er genginn í raðir skoska félagsins Aberdeen en hann gekkst undir læknisskoðun hjá félaginu í gær og skrifaði svo undir samning.
Kári sem er 28 ára gamall kemur til félagsins frá Plymouth sem vísaði honum á brott þegar hann vildi fá launin sín fyrr í sumar.
Hann hafði fyrr í sumar æft með Hearts en í kjölfarið sýndi Aberdeen honum áhuga og nú er hann farinn þangað.
,,Hann mun styrkja liðið,\" sagði Craig Brown stjóri Aberdeen.
,,Ég tel að við séum að mynda sterkt Aberdeen lið, það er von mín allavega.\"
Kári á að baki 17 landsleiki fyrir Ísland. Hann skorað í æfingaleik Aberdeen gegn Inveruie í síðustu viku. Hann hóf feril sinn hjá Víkingi og fór þaðan til Djurgarden og síðar til AGF og Esbjerg áður en hann fór til Plymouth.

Heimild: BBC