19.07.11 - 11:59
Hörður Snævar Jónsson
Eiður Smári til AEK (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Eiður Smári Guðjohnsen er genginn í raðir AEK Aþenu en hann er nú á blaðamannafundi í Aþenu þar sem hann er kynntur sem leikmaður félagsins.
Eiður kom til Aþenu í gær þar sem um 1500 manns mættu til að sjá hann koma til Grikklands.
Allt benti til að Eiður Smári myndi ganga í raðir West Ham þar sem hann hafði farið í læknisskoðun.
Arnar Grétarsson yfirmaður knattspyrnumála hjá AEK virðist hinsvegar hafa náð að sannfæra Eið um að koma til Grikklands.
Eiður Smári gekk til liðs við Stoke City fyrir ári síðan en fékk nánast ekkert að spila. Hann var lánaður til Fulham á síðari hluta síðustu leiktíðar.
Hann er annar íslenski leikmaðurinn sem AEK fær á viku en Elfar Freyr Helgason gekk í raðir félagsins frá Breiðablik í síðustu viku.