Fotbolti.net
19.07.11 - 13:18
Hafliði Breiðfjörð

Íris Dóra Snorradóttir í Aftureldingu (Staðfest)

Íris Dóra í leik með Fylki.

Íris Dóra í leik með Fylki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Afturelding heldur áfram að styrkja lið sitt því í dag fékk Íris Dóra Snorradóttir sóknarmaður Fylkis leikheimild með liðinu en hún kemur á láni út þessa leiktíð.
Íris Dóra er þriðji leikmaðurinn sem fær leikheimild með Aftureldingu fyrir leikinn gegn KR í Pepsi-deild kvenna í kvöld en áður hafði Anna Garðarsdóttir komið frá Val og Hekla Pálmadóttir frá Breiðabliki.

Íris Dóra Snorradóttir er tvítug og hóf feril sinn hjá HK/Víkingi árið 2009. Þar skoraði hún 11 mörk í 12 leikjum í 1. deild kvenna en eftir tímabilið 2009 gekk hún til liðs við Fylki.

Hún skoraði sex mörk í 19 leikjum í deild og bikar með Fylki á síðustu leiktíð en hefur ekki átt sæti í liðinu í sumar og aðeins komið við sögu í sex leikjum í deild og bikar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.