19.07.11 - 17:53
Elvar Geir Magnússon
Stefán Eggertsson lánaður frá Val í HK (Staðfest)

Stefán Jóhann Eggertsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Jóhann Eggertsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Jóhann Eggertsson hefur verið lánaður aftur heim í HK frá Val. Samningur Stefáns við Val er út þetta tímabil. Stefán er 27 ára en hann hefur oftast leikið í bakverðinum síðustu ár auk þess að geta leyst stöðu kantmanns.
Stefán gekk til liðs við Val í lok árs 2009 en hann hefur ekki byrjað neinn leik með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. eftir að hafa leikið 19 deildarleiki í fyrra.
HK berst fyrir lífi sínu í 1. deild en liðið er þar í neðsta sæti. Stefán ætti að geta leikið með HK þegar liðið mætir Leikni í fallbaráttuslag á fimmtudag.
Heimasíða HK hefur eftir Ómari Þorgeirssyni, formanni knattspyrnudeildar, að unnið sé að því að styrkja leikmannahópinn frekar á næstu dögum.

Heimild: Heimasíða HK