Fotbolti.net
19.08.10 - 07:41
Alexander Freyr Tamimi

Jon Walters til Stoke eftir mikla dramatík (Staðfest)

Jon Walters (til vinstri) er farinn til Stoke.

Jon Walters (til vinstri) er farinn til Stoke.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Stoke hefur gengið frá kaupunum á framherjanum Jon Walters frá Ipswich fyrir 2,75 milljónir punda.
Þessi 26 ára leikmaður getur að vísu einnig spilað á hægri kanti og skrifaði hann undir fjögurra ára samning við Stoke, sem er heldur betur að hressa upp á framlínuna.

„Ég hef reynt að fá liðið til að skora fleiri mörk og Jon mun svo sannarlega hjálpa til með það,“ sagði knattspyrnustjórinn Tony Pulis.

„Undanfarin þrjú ár hefur hann verið framúrskarandi leikmaður í Championship deildinni. Ég er viss um að hann getur haft sömu áhrif í úrvalsdeildinni.“

Walters, sem var fyrirliði Ipswich, hafði fyrir stuttu greint frá því að hann vildi yfirgefa félagið og vöktu ummælin ekki mikla lukku hjá knattspyrnustjóranum Roy Keane. Írinn svipti Walters fyrirliðabandinu og sagði að leikmaðurinn myndi aldrei aftur spila í treyju Ipswich á meðan hann væri við stjórn liðsins. Nú er Walters aftur á móti farinn og allir geta verið ánægðir.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.