19.08.10 - 17:31
Magnús Már Einarsson
Loic Remy til Marseille (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Marseille hefur keypt franska framherjann Loic Remy frá Nice fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 23 ára gamli leikmaður skrifaði undir fimm ára samning við Marseille fyrr í dag.

Remy skoraði fjórtán mörk í frönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og mörg félög í Engandi sýndu honum áhuga í sumar.
Nú er hins vegar ljóst að Remy fer til Marseille þar sem hann mun fylla skarð Mamadou Niang sem gekk í raðir Fenerbahce í síðustu viku eftir að hafa verið markakóngur í Frakklandi í fyrra.

Heimild: Reuters