19.09.06 - 15:55
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Joseph-Desire Job til Sedan (Staðfest)

Job í leik með Middlesbrough

Mynd: Getty Images

Job í leik með Middlesbrough

Mynd: Getty Images
Kamrúnski sóknarmaðurinn Joseph-Desire Job hefur gengið til liðs við franska félagið Sedan frá Sádi-Arabíska félaginu Al-Ittihad þar sem hann hefur verið undanfarið.
Job, sem er 28 ára gamall, skrifaði undir eins árs samning í Frakklandi með möguleika á einu ári í viðbót ef hann nær að festa sig í sessi hjá félaginu.
Hann hefur meðal annars spilað með enska félaginu Middlesbrough þar sem hann sýndi oft lipra taka en náði aldrei að komast alveg í byrjunarliðið . Þar áður spilaði hann með Lens og Lyon en kom til Al Ittihad frá Metz.
Job hefur spilað 46 landsleiki fyrir Kamerún og skorað í þeim sex mörk.