Ítalska Serie A hefst um helgina og í dag fara fram tveir leikir. Á mánudag verður svo Bologna í eldlínunni og á mála hjá félaginu er Andri Fannar Baldursson sem lék sinn fyrsta A-landsleik á dögunum.
Andri, sem er átján ára gamall, lék sina fyrstu leiki með Bologna á síðustu leiktíð og kom alls við sögu í sjö deildarleikjum. Hann lék þá í treyju númer 34.
Bologna hefur tilkynnt um ný treyjunúmer og sést þar að Andri verður í treyju númer átján á þessari leiktíð.
mánudagur 21. sept:
Ítalía: Sería A
18:45 Milan - Bologna
🔢 Ecco i numeri di maglia per la nuova stagione 🔢#WeAreReady #WeAreOne pic.twitter.com/Uis5xi44sP
— Bologna Fc 1909 (@BfcOfficialPage) September 17, 2020
Athugasemdir