19.10.09 - 19:44
Matthías Freyr Matthíasson
Arnar Már Guðjónsson til ÍA (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Arnar Már Guðjónsson sem undanfarin 2 ár hefur leikið með KA á Akureyri hefur komist að samkomulagi við ÍA um að ganga til liðs við þá. En Arnar Már er að upplagi skagamaður.
Arnar er í viðtali við heimasíðu ÍA og þar segir hann að það sé allt frágengið og hann komi til með að skrifa formlega undir samning um áramótin.
Einnig segir Arnar að þegar ÍA hafi haft samband við hann hefði honum fundist það spennandi verkefni að koma ÍA aftur í úrvalsdeild, sem yrði stóra verkefnið næsta sumar.
Honum hafi líkað vel á Akureyri en að það væru líka fjölskylduaðstæður sem kölluðu á það að hann kæmi heim.

Heimild: Heimasíða ÍA