19.11.06 - 18:03
Hafliði Breiðfjörð
Nína Ósk Kristinsdóttir í Val (Staðfest)

Íslands- og bikarmeistarar Vals fá góðan liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Valur samdi í dag við Nínu Ósk Kristinsdóttur sem kemur til félagsins frá Keflavík en henni er ætlað að leysa hlutverk Margrétar Láru Viðarsdóttur sem gekk til liðs við Duisburg í Þýskalandi í haust.
Nína sem er 21 árs gömul gerði tveggja ára samning við Val. Hún hafði verið samningsbundin Keflavík út næsta ár en nýtti sér klásúlu í samningnum og fékk honum rift.
Nína er mikil markamaskína og skoraði 24 mörk í 14 leikjum með Keflavík í sumar og varð næst markahæst á eftir Margréti Láru sem skoraði 34 mörk í 14 leikjum.
Hún er alls ekki ókunnug Val því hún kom fyrst þangað árið 2003 frá Reyni í Sandgerði og var hjá Val fram í júní 2005 er hún gekk í raðir Keflavíkur. Hún á að baki 6 A landsleiki fyrir Íslands hönd, alla árið 2004 og skoraði í þeim eitt mark.