Fotbolti.net
19.11.09 - 12:21
Hafliði Breiðfjörð

Guðrún Jóna þjálfar KR (Staðfest)

Frá undirskriftinni í hádeginu.

Frá undirskriftinni í hádeginu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
KR-ingar staðfestu á fréttamannafundi í hádeginu að Guðrún Jóna Kristjánsdóttir hafi verið ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna og hún skrifaði undir þriggja ára samning við félagið á fundinum.
Guðrún Jóna kemur til félagsins frá Aftureldingu þar sem hún hefur verið undanfarin ár. Henni til aðstoðar verður Kristrún Lilja Daðadóttir sem var einn tveggja þjálfara liðsins á síðstu leiktíð.

Auk þess hefur Björgvin Karl Gunnarsson verið ráðinn þjálfari 2. flokks kvenna og hann mun einnig vera í þjálfarateyminu með Guðrúnu Jónu og Kristrúnu.

Þá skrifaði fyrirliðinn Lilja Dögg Valþórsdóttir undir nýjan tveggja ára samning við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.