19.11.09 - 20:36
Magnús Már Einarsson
Michael Tonge til Preston á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Preston North End hefur fengið miðjumanninn Michael Tonge á láni frá Stoke.
Þessi 26 ára gamli leikmaður verður í láni hjá Preston þar til 28.desember næstkomandi.
Tonge kom til Stoke á tvær milljónir punda frá Sheffield Wednesday í september í fyrra.
Hann hefur ekki komið við sögu í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð og einungis leikið fjórtán leiki með Stoke síðan að hann kom til félagsins.
,,Ég er ánægður með að vera kominn til Preston. Ég þarf að fara að spila fótbolta,\" sagði Tonge.

Heimild: BBC