Mason Greenwood, framherji Manchester United, segir Wayne Rooney alla tíð hafa verið í miklu uppáhaldi hjá sér.
Hinn 18 ára gamli Greenwood er að brjótast inn í lið Manchester United og hann vill feta í fótspor Rooney og raða inn mörkum með liðinu.
Hinn 18 ára gamli Greenwood er að brjótast inn í lið Manchester United og hann vill feta í fótspor Rooney og raða inn mörkum með liðinu.
„Rooney er frábær markaskorari og það er það sem ég vil verða," sagði Greenwood.
„Þú verður að eiga átrúnaðargoð. Ég hef hins vegar aldrei hitt hann."
„Ég hef horft á leiki með honum og svipmyndir á YouTube. Vonandi get ég hitt hann einn daginn."
Athugasemdir