Fotbolti.net
19.12.06 - 17:50
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Leonardo Santiago til Ajax (Staðfest)

Leonardo Santiago í leik með Feyenoord

Leonardo Santiago í leik með Feyenoord

Canon

Mynd: Getty Images

Hollenska félagið Ajax hefur gengið frá kaupunum á brasilíska sóknarmanninum Leonardo Santiago frá NAC Breda, en bæði þessi félög eru í efstu deildinni þar í landi eins og líklega flestir vita.
Þessi 23 ára gamli leikmaður, sem skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við Ajax, var í fimm ár hjá Feyenoord áður en hann fór til NAC fyrir tólf mánuðum. Hann skoraði átta mörk í fjórtán leikjum á síðasta tímabili en hefur aðeins skoraði eitt mark í fimmtán leikjum á þessu tímabili.

Leonardo var bæði í viðræðum við Ajax og PSV en valdi að lokum fyrrnefnda félagið: ,,Mér fannst ég ánægðastur eftir viðræður við fólkið frá Ajax. Það snýst ekki aðeins um peningana, ég verð að hafa góða tilfinningu um klúbbinn. Ajax er topplið, og ég býst við miklu frá þeim."

Heimild: Opinber heimasíða UEFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.