Fotbolti.net
20.01.09 - 12:11
Hafliði Breiðfjörð

Vigfús Arnar, Ágúst Þór og Kristinn Freyr í Fjölni (Staðfest)

Vigfús Arnar Jósepsson sem hér er hægra megin á myndinni í leik gegn Fjölni er nú genginn í raðir Fjölnis eins og Ágúst Þór Ágústsson og Kristinn Freyr Sigurðsson.

Vigfús Arnar Jósepsson sem hér er hægra megin á myndinni í leik gegn Fjölni er nú genginn í raðir Fjölnis eins og Ágúst Þór Ágústsson og Kristinn Freyr Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjölnismenn hafa gengið frá samningum við þrjá nýja leikmenn fyrir átökin í Landsbakadeildinni á komandi leiktíð. Þetta eru þeir Vigfús Arnar Jósepsson sem kemur úr Leikni, Ágúst Þór Ágústsson sem kemur frá Hvöt og Kristinn Freyr Sigurðsson sem snýr aftur til félagsins frá Stjörnunni. Þetta staðfesti Einar Hermannsson formaður meistaraflokksráðs Fjölnis í samtali við Fótbolta.net í dag.
Vigfús Arnar Jósepsson er 24 ára gamall miðjumaður sem kemur frá Leikni. Hann hefur ýmist verið hjá KR og Leikni undanfarin ár og hefur leikið 83 leiki í deild og bikar fyrir félögin og skorað í þeim tíu mörk. Hann á að baki 3 leiki fyrir U19 ára landslið Íslands.

Ágúst Þór Ágústsson er einnig 24 ára gamall miðjumaður sem snýr nú aftur til Fjölnis sem hann lék með í 1. deildinni sumarið 2006. Hann er uppalinn hjá Breiðablik þar sem hann hefur verið allan sinn feril utan sumarsins 2006 og síðasta sumars er hann lék með Hvöt í 2. deildinni.

Kristinn Freyr Sigurðsson er sóknar-/miðjumaður sem verður 18 ára gamall á árinu. Hann er uppalinn hjá Aftureldingu en gekk til liðs við Fjölni haustið 2005 og var þar allt þar til í fyrrasumar er hann gekk í raðir Stjörnunnar seinni hluta tímabilsins. Hann snýr nú aftur í Fjölni sem hann hefur leikið einn leik með, á Grindavíkurvelli sumarið 2007.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.