20.01.09 - 16:44
Hafliði Breiðfjörð
Oddur Ingi Guðmundsson til Þróttar (Staðfest)

Oddur Ingi eftir undirskriftina hjá Þrótti í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oddur Ingi Guðmundsson gekk í dag í raðir Landsbankadeildarliðs Þróttar frá Esjberg í Danmörku þar sem hann hefur verið undanfarin ár.
Oddur Ingi hafði æft með Fylki, Fram og Þrótti að undanförnu en valdi að lokum að ganga til liðs við Þrótt.
Oddur Ingi er 19 ára gamall og er uppalinn í Fylki. Hann yfirgaf Fylki sumarið 2006 og gekk þá í raðir Esjberg þar sem hann hefur spilað með varaliðinu. Hann er miðjumaður sem spilar helst á miðri miðjunni.
Oddur Ingi er annar leikmaðurinn sem kemur til Þróttar eftir að tímabilinu lauk. Áður hafði markvörðurinn Henrik Bödker komið frá Hetti.
Rætt verður við Odd Inga í viðtali hér á Fótbolta.net í fyrramálið.\"