20.01.09 - 18:17
Hafliði Breiðfjörð
Jermaine Pennant til Portsmouth (Staðfest)

Jermaine Pennant er orðinn leikmaður Portsmouth.

Mynd: Getty Images

Portsmouth hefur gengið frá því að Jermaine Pennant er kominn til félagsins á láni frá Liverpool út tímabilið.
Pennant sem er 26 ára gamall fyrrverandi leikmaður Birmingham City og Arsenal hafði áður hafnað því að vera seldur til Portsmouth en samþykkti í dag að fara þangað á láni.
Pennant verður samningslaus í sumar og mun því ljúka ferli sínum hjá Liverpool sem lánsmaður hjá Portsmouth en hann hefur átt erfitt með að komast í hóp hjá Liverpool á tímabilinu.
,,Ég hef þekkt hann lengi,\" sagði Tony Adams stjóri Portsmouth í dag. ,,Við vorum saman hjá Arsenal fyrir löngu síðan. Hann var nýr strákur í hópnum og mjög spennandi efni.\"
,,Ég sá hann spila með Peter Crouch hjá Liverpool gegn Fulham á síðasta ári og hann var alltaf að komast framhjá vinstri bakverðinum og átti góðar sendingar á Crouchie. Þetta er góð blanda sem ég vildi setja saman á ný.\"

Heimild: Sky