Fotbolti.net
20.02.06 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Sævar Eyjólfsson til ÍBV (Staðfest)

Sævar í leik með Þrótti gegn ÍBV á Laugardalsvelli síðasta sumar en í þessum leik léku Eyjamenn í íslensku landsliðsbúningunum.

Sævar í leik með Þrótti gegn ÍBV á Laugardalsvelli síðasta sumar en í þessum leik léku Eyjamenn í íslensku landsliðsbúningunum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Framherjinn Sævar Eyjólfsson er genginn í raðir ÍBV en hann fékk leikheimild með liðinu í gær í tæka tíð svo hann náði að vera í leikmannahópi ÍBV sem mætti Breiðablik í fyrsta leik liðanna í deildabikarkeppni KSÍ.
Sævar sem er 28 ára gamall á árinu kemur til ÍBV frá Þrótti en það hefur staðið til að undanförnu að hann gengi í raðir Eyjamanna og hefur hann því æft með þeim og leikið æfingaleiki. Nú varð hann hinsvegar að fá leikheimild til að geta spilað í deildabikarnum.

Sævar er framherji sem hafði komið til Þróttar frá Haukum fyrir síðasta tímabil en hann hafði verið í þrjú ár í Hafnarfirðinum og þar áður í Njarðvík.

Hann lék átta leiki með Þrótti í Landsbankadeildinni í sumar en náði ekki að skora. Hann skoraði hinsvegar átta mörk í 14 leikjum með Haukum í 1. deildinni sumarið 2004.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.