Fotbolti.net
20.02.08 - 15:24
Magnús Már Einarsson

Brynjar Örn, Hafsteinn og Bessi í Keflavík (Staðfest)

Kenneth og Guðmundur verða áfram - Búast ekki við að styrkja sig meira

Hafsteinn Ingvar Rúnarsson hefur gengið til liðs við Keflvíkinga.

Hafsteinn Ingvar Rúnarsson hefur gengið til liðs við Keflvíkinga.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Keflvíkingar hafa fengið Brynjar Örn Guðmundsson og Hafstein Ingvar Rúnarsson frá Reyni Sandgerði auk þess sem Bessi Víðisson, ungur leikmaður frá Dalvík/Reyni, hefur gengið til liðs við félagið.
Brynjar Örn og Hafsteinn hafa æft með Keflvíkingum undanfarnar vikur og leikið æfingaleiki en þeir voru báðir fastamenn hjá Reyni í fyrstu deildinni á síðustu leiktíð. Brynjar er miðjumaður en Hafsteinn leikur á kantinum.

Báðir léku þeir með Keflvíkingum í yngri flokkunum en að sögn Kristjáns Guðmundssonar þjálfara liðsins munu þeir fá félagaskipti í vikunni.

,,Þetta eru tveir leikmenn sem styrkja hópinn. Við þurfum að auka breiddina og hækka aðeins meðalaldurinn þannig að það séu ekki einungis ungir strákar sem eru að koma inná heldur líka menn með aðeins meiri reynslu heldur en 2.flokksstrákar og leikmenn sem eru nýskriðnir upp úr 2.flokki," sagði Kristján við Fótbolta.net í dag.

Bessi er 17 ára miðjumaður en hann hefur æft með Keflvíkingum frá því í haust og leikið æfingaleiki með liðinu. Á síðustu leiktíð skoraði hann fjögur mörk í tólf leikjum með Dalvík/Reyni í þriðju deildinni.

,,Hann hefur staðið sig vel með okkur en hann hefur leikið æfingaleiki með öðrum flokki og meistaraflokki. Hann er ungur en hann fær verkefni og hlutverk miðað við það hvernig hann stendur sig," sagði Kristján en hann segir ekki útilokað að Bessi fái tækifæri í Landsbankadeildinni í sumar.

Ljóst er að miðverðirnir Kenneth Gustafsson og Guðmundur Viðar Mete verða áfarm hjá Keflavík.

Tyrkneska félagið Kasimpasa sýndi Guðmundi áhuga en þjálfari þess var rekinn og því varð ekkert úr því að hann færi þangað. Svipað var uppi á teningnum hjá Kenneth en danskt félag hafði áhuga á honum.

,,Hann verður hjá okkur. Hann kom um miðjan janúar aftur og verður hjá okkur. Þetta var svipað og hjá Mete, þegar hann var á leið til liðs var þjálfarinn rekinn og þá breytast oft forsendur. Það dúkkaði ekkert annað upp hjá honum þannig að hann verður áfram með okkur og er sáttur við það."

Guðmundur Viðar hefur ekki getað leikið með Keflvíkingum að undanförnu vegna bakmeiðsla en hann er í stífri sjúkraþjálfun til að reyna að vinna bug á meiðslunum.

,,Hann er í sjúkraþjálfun núna og koma líkamanum í betra stand til að hann geti tekist á við fótboltaæfingarnar. Það eina sem við þurfum að gera núna er að passa að við náum að vinna nógu vel í bakinu á honum þannig að hann geti spilað eins og herforingi og verið í því leikstandi sem þarf að vera í til að spila í úrvalsdeild," sagði Kristján.

Keflvíkingar hafa alls fengið sex leikmenn frá því á síðasta tímabili. Liðið fékk Patrik Redo frá Fram, sænska leikmanninn Ivica Skiljo og miðjumanninn Jón Gunnar Eysteinsson frá Fjarðabyggð auk þess sem Hafsteinn, Brynjar Örn og Bessi hafa nú allir gengið til liðs við félagið. Fimm leikmenn hafa yfirgefið Keflvíkinga frá síðastliðnu sumri en Kristján er ekki að skoða fleiri leikmenn í augnablikinu.

,,Við erum ekkert að leita eða bíða eftir að fá að skoða einhvern leikmann. Við vinnum á þessum strákum," sagði Kristján og bætti við að leikmannahópurinn sé að öllu óbreyttu klár fyrir sumarið.

,,Það má segja það, ekki nema það poppi upp akkúrat leikmaður sem okkur vantar og vill endilega koma til Keflavíkur, þá tökum við hann," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflvíkinga, að lokum við Fótbolta.net.
Guðmundur Viðar Mete.

Guðmundur Viðar Mete.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristján Guðmundsson. þjálfari Keflvíkinga.

Kristján Guðmundsson. þjálfari Keflvíkinga.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.