20.02.08 - 16:22
Magnús Már Einarsson
Árni Freyr Guðnason í ÍR á láni (Staðfest)

Árni Freyr í leik með Reyni síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR úr annarri deild hefur fengið miðju og sóknarmaninn Árna Frey Guðnason á láni frá FH og verður hann með liðinu í sumar.
Árni lék með Reyni Sandgerði í fyrstu deildinni síðastliðið sumar og eftir að hafa átt við meiðsli að stríða framan af sumri kom hann inn í liðið að nýju og skoraði fjögur mikilvæg mörk í lok móts en þau nægðu þó ekki til að forða liðinu frá falli.
Árni, sem er 21 árs, á þrjá leiki að baki með FH í Landsbankadeildinni en hann er uppalinn hjá félaginu. Guðlaugur Baldursson þjálfari ÍR þjálfaði Árna á sínum tíma í yngri flokkum FH og hann er ánægður með hafa fengið hann til Breiðholtsliðsins.
,,Það er gott að fá hann. Ég þekki hann vel, ég er búinn að þjálfa hann í mörg ár og hann er okkur mikill styrkur," sagði Guðluagur Baldursson við Fótbolta.net í dag.
ÍR-ingar eru komnir í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins þar sem liðið mætir Fram í næstu viku. ÍR-ingar hafa sýnt fín tilþrif á Reykjavíkurmótinu en Guðlaugur segir möguleika á að liðið styrki sig frekar fyrir sumarið.
,,Það eiga einhver nöfn eftir að poppa upp hjá okkur vonandi en annars er hópurinn tiltölulega stóra og ágætlega sterkur. Við erum að reyna að vanda okkur í að velja inn í hann það sem vantar," sagði Guðlaugur.