20.02.12 - 19:00
Magnús Már Einarsson
Fannar Freyr í Tindastól (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tindastóll hefur fengið sóknarmanninn Fannar Frey Gíslason á láni frá Skagamönnum.
,,þá er það komið á hreint :) #jákvætt og #spennandi #Tindastóll,\" skrifaði Fannar á Twitter síðu sína í kvöld.
Fannar Freyr er fæddur árið 1991 en hann lék með Tindastóli í yngri flokkunum áður en hann fór til ÍA árið 2010.
Í fyrra var Fannar í láni hjá HK fyrri hluta tímabils en hann skoraði þar tvö mörk í átta leikjum í fyrstu deildinni.
Hann gekk síðan aftur í raðir ÍA þar sem hann skoraði tvö mörk í tólf leikjum í fyrstu deild.
Tindastóll sigraði aðra deildina síðastliðið sumar en að sögn Halldórs Jóns Sigurðarsonar þjálfara liðsins er von á frekari liðsstyrk á Sauðárkrók á næstunni.