Fotbolti.net
20.02.12 - 22:00
Hafliði Breiðfjörð

Hólmfríður Magnúsdóttir og Kristín Ýr í Avaldsnes (Staðfest)

Hólmfríður í leik með Val í sumar.

Hólmfríður í leik með Val í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Kvennaboltinn
Hólmfríður Magnúsdóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir sem léku með Val á síðasta ári eru gengnar til liðs við norska liðið Avaldsnes sem leikur í næst efstu deild þar í landi. Þetta staðfesti Hólmfríður í samtali við Fótbolta.net í kvöld en þær semja við liðið út komandi tímabil.
Fyrir hjá félaginu er markvörðurinn Björk Björnsdóttir sem kom þangað í vetur frá Fylki.

Hólmfríður mun fara með íslenska landsliðinu til Algarve Cup og eftir það fer hún og Kristín til Noregs og hefja æfingar með liðinu fyrir komandi leiktíð sem hefst 15. apríl með leik gegn Alta.

Hólmfríður er vinstri kantmaður sem hefur átt fast sæti í íslenska landsliðinu undanfarin ár ætlaði að spila með Philadelphia Independence í bandarísku atvinnumannadeildinni næsta sumar en óvænt var hætt við að spila deildina svo hún var orðin félagslaus.

Kristín Ýr er mikill markahrókur og hefur allan sinn feril spilað með Val. Hún á að baki 141 leik í deild og bikar og hefur skorað í þeim 114 mörk.

Rætt verður við Hólmfríði í viðtali hér á Fótbolta.net í fyrramálið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.