20.02.12 - 23:30
Elvar Geir Magnússon
Huddersfield og Notts County ráða nýja stjóra (Staðfest)

Notts County hefur fengið nýjan stjóra.

Mynd: Getty Images

Notts County hefur fengið nýjan stjóra.

Mynd: Getty Images
Simon Grayson hefur skrifað undir þriggja og hálfs ára samning við Championship-lið Huddersfield. Grayson var fyrr í þessum mánuði rekinn frá Leeds en var ekki lengi atvinnulaus.
Huddersfield er sem stendur í fimmta sæti ensku C-deildarinnar og er það verkefni Grayson að reyna að koma liðinu upp.
„Það er ekki oft sem svona starf býðst, stjórastaða hjá liði sem er í baráttunni um að fara upp,\" sagði Grayson við undirskriftina.
Þá hefur Notts County staðfest að Keith Curle sé nýr stjóri liðsins. Notts County er í ellefta sæti C-deildar en Curle er 48 ára og var aðstoðarmaður Neil Warnock hjá QPR en þeir voru reknir í janúar.