Magni Jóhannes Þrastarson hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari Álafoss sem leikur í 4. deildinni í sumar eftir að hafa komist upp úr 5. deild í fyrra.
Magni Jóhannes er ungur Ísfirðingur sem hefur leikið fyrir Hörð og Fálka á síðustu árum. Hann er fæddur árið 2001 og verður spennandi að fylgjast með þróun liðsins undir hans stjórn.
Samhliða því að spila í neðstu deildum hefur Magni starfað sem þjálfari hjá Val undanfarin þrjú ár. Starf hans þar hefur verið fjölbreytt og var hann til að mynda með meistaraflokk kvenna hjá KH í 2. deild eitt tímabilið.
Magni mun ekki eingöngu þjálfa Álafoss í sumar heldur sinnir hann einnig öðrum verkefnum innan yngri flokka Aftureldingar.
„Við hjá Álafossi bjóðum Magna hjartanlega velkominn til starfa og hlökkum til samstarfsins á komandi tímabili," segir í tilkynningu frá félaginu.
Athugasemdir



