Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   fös 20. febrúar 2026 01:26
Brynjar Ingi Erluson
Fyrrum aðstoðarþjálfari Chelsea tekinn við Elfsborg (Staðfest)
Mynd: Elfsborg
Björn Hamberg, aðstoðarþjálfari sænska karlalandsliðsins, er nýr þjálfari Elfsborg í Svíþjóð en þessu greinir klúbburinn frá á heimasíðu sinni.

Hamberg kemur til félagsins frá Brighton þar sem hann var aðalþjálfari U18 ára liðsins.

Þessi 40 ára gamli Svíi er sem stendur aðstoðarmaður Graham Potter hjá sænska landsliðinu og mun sinna því starfi áfram í umspilsleikjunum í mars og mögulega á HM.

Hann hefur fylgt Potter út um allar trissur en þeir störfuðu fyrst saman hjá Östersund í Svíþjóð og fylgdi honum síðan til Swansea, Brighton og Chelsea.

Öflug ráðning hjá Elfsborg sem hefur verið mikið Íslendingalið síðustu ár. Ari Sigurpálsson og Júlíus Magnússon eru báðir samningsbundnir liðinu og þá er Gabríel Snær Gunnarsson, leikmaður ÍA, að ganga í raðir félagsins á næstu vikum.

Elfsborg hafnaði í 8. sæti undir Oscar Hiljemark á síðustu leiktíð sem voru talin mikil vonbrigði. Liðið vann átta af fyrstu tólf deildarleikjum sínum en um haustið hrundi allt og rann Evrópusætið úr greipum liðsins.


Athugasemdir
banner
banner