Grindavík/Njarðvík, sem er nýliði í Bestu deild kvenna, var að krækja sér í Lily Anna Farkas sem kemur úr röðum Fram.
Lily er 25 ára gömul sem lék í bandaríska háskólaboltanum og varð Danmerkurmeistari með Fortuna Hjörring áður en hún flutti til Íslands.
Lily spilaði alla deildarleiki Fram í fyrra nema einn er liðið forðaðist fall og má búast við að hún leysi lykilhlutverk fyrir nýliðana komandi sumar.
Hún er bæði með bandarískan og ungverskan ríkisborgararétt og hefur spilað fyrir U19 landslið Ungverjalands.
„Lily er skemmtilegur leikmaður sem kemur með aukna vídd í sóknarleikinn okkar. Hún getur leyst margar stöður fram á við, er skapandi og tæknilega góð. Hún kemur með reynslu af deildinni sem mun nýtast okkur vel og við væntum mikils af henni í sumar," segir Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur.
Athugasemdir


