Valgerður Ósk Valsdóttir er gengin í raðir Hauka frá nágrönnunum í FH.
Valgerður er uppalin í FH og á 159 meistaraflokksleiki á vegum KSÍ með félaginu.
Á síðasta tímabili spilaði hún 22 leiki með FH og skoraði eitt mark er liðið hafnaði í öðru sæti Bestu deildarinnar og tryggði sér þar með Evrópusæti.
Hún sagði skilið við FH og hefur nú gengið í raðir nágranna þeirra í Haukum sem höfnuðu í 6. sæti Lengjudeildarinnar á síðustu leiktíð.
„Það er mikið gleðiefni að fá Völu til liðs við okkur. Hún býr yfir miklum gæðum, hefur gott auga fyrir spili og hentar okkar leikstíl fullkomlega. Hún er líka alvöru karakter með mikinn metnað og drifkraft, sem er akkúrat það sem við höfum verið að leitast eftir í okkar lið,“ sagði Hörður Bjarnar Hallmarsson, þjálfari Hauka, um Valgerði.
Valgerður, sem á ellefu landsleiki að baki fyrir yngri landsliðin, segist spennt fyrir framtíðinni.
„Ég er ánægð að vera orðin hluti af liðinu og spennt fyrir komandi tímabili,“ sagði hún við undirskrift.
Athugasemdir



