20.04.08 - 11:23
Magnús Már Einarsson
Björn Viðar Ásbjörnsson í ÍR (Staðfest)

Björn Viðar fagnar marki með ÍR síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Björn Viðar Ásbjörnsson hefur samið við ÍR en þessi 27 ára gamli framherji þekkir vel til í Breiðholtinu eftir að hafa verið í láni hjá félaginu hluta af síðasta tímabili.
Björn Viðar hætti hjá Víkingi Reykjavík í lok febrúar eftir eins árs dvöl hjá félaginu. Hann er uppalinn hjá Fylki og hafði leikið með Árbæjarliðinu nánast allan sinn feril áður en hann gekk til liðs við Víking haustið 2006.
Hjá Víkingi náði Björn Viðar hins vegar ekki að festa sig í sessi og í kjölfarið fór hann til ÍR á láni síðari hluta síðasta sumars og þar skoraði hann fimm mörk í sex leikjum í annarri deildinni.
Guðlaugur Baldursson þjálfari ÍR er ánægður með að fá Björn en hann segir að félagið sé ekki lengur í leit að leikmönnum, leikmannahópurinn sé nú fullskipaður fyrir sumarið.
,,Við erum ánægðir með að vera búnir að fá Björn og við erum ekkert að leita neitt núna, við teljum okkar hóp vera fullmannaðan," sagði Guðlaugur við Fótbolta.net í gær.