Fotbolti.net
20.04.21 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía í dag - Fiorentina þarf stig í Veróna

Ítalía í dag - Fiorentina þarf stig í Veróna
Canon

Mynd: Getty Images

Verona og Fiorentina eigast við í eina leik dagsins í ítalska boltanum sem verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.
Verona siglir lygnan sjó um miðja deild en Fiorentina þarf stig í fallbaráttunni, þar sem liðið er aðeins fimm stigum fyrir ofan fallsæti.

Fiorentina hefur valdið miklum vonbrigðum enn eitt tímabilið og er liðið aðeins búið að safna 30 stigum í 31 leik. Cagliari virðist vera að taka við sér og gæti bjargað sér með nokkrum sigrum.

Báðum liðum hefur gengið hörmulega að undanförnu, þar sem Fiorentina er með eitt stig úr síðustu fjórum umferðum og Verona með þrjú stig úr síðustu sex.

Leikur kvöldsins:
18:45 Verona - Fiorentina (Stöð 2 Sport 2)

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.