Fotbolti.net
20.05.06 - 11:17
Magnús Már Einarsson

Ellert lánaður til Víkings Ó. (Staðfest)

Ellert í baráttu við Milos Glogovac leikmann Víkings R.

Ellert í baráttu við Milos Glogovac leikmann Víkings R.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Víkingur Ólafsvík úr fyrstu deild hefur fengið sóknarmanninn Ellert Hreinsson að láni frá Breiðablik en þetta kemur fram á heimasíðu Víkings í dag.
Ellert sem er tvítugur í ár skoraði fjögur mörk í átján leikjum fyrir Blika í fyrstu deildinni í fyrra en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi eftir komu Marels Baldvinssonar. Hann skoraði reyndar tvívegis fyrir Blika gegn Víkingi Ólafsvík í deildabikarnum í vetur en hann er kominn með leikheimild og er löglegur með Ólsurum gegn Þrótti á morgun.

Þá hefur nítján ára franskur leikmaður, Jamal Ezzahar fengið leikheimild með Víkingi en hann hefur verið til reynslu hjá liðinu að undanförnu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.