Fotbolti.net
20.05.11 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Paolo Di Canio tekinn við Swindon (Staðfest)

Paolo Di Canio tekinn við Swindon (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Paolo Di Canio hefur verið ráðinn stjóri Swindon Town sem leikur í fjórðu efstu deild á Englandi. Di Canio tekur við liðinu af Paul Hart sem hætti eftir að Swindon féll úr ensku fyrstu deildinni á dögunum.
Di Canio, sem er 42 ára, lagði skóna á hilluna fyrir þremur árum eftir litríkan feril þar sem hann varð meðal annars uppáhald stuðningsmanna West Ham.

Að auki lék Di Canio með Sheffield Wednesday þar sem hann fékk ellefu leikja bann fyrir að hrinda dómaranum Paul Alcock í leik gegn Arsenal árið 1998.

Þremur árum síðar fékk hann verðlaun frá Fifa fyrir heiðarlegan leik þegar hann sleppti því að skora í autt markið gegn Everton þar sem markvörður liðsins lá meiddur í grasinu.

Árið 2000 skoraði Di Canio einnig mark tímabilsins gegn Wimbledon en það má sjá hér að neðan.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.