Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 10:00
Elvar Geir Magnússon
Guardiola í árs frí - Alonso vill sóknarmann Brentford
Powerade
Igor Thiago.
Igor Thiago.
Mynd: EPA
Stórlið vilja Bowen.
Stórlið vilja Bowen.
Mynd: EPA
Það er vel við hæfi að óska stuðningsmönnum Arsenal innilega til hamingju með Englandsmeistaratitilinn! Hér er slúðurpakki dagsins í boði Powerade.

Pep Guardiola er hlynntur því að Enzo Maresca verði maðurinn sem taki við Manchester City. AC Milan, Tottenham og Real Madrid hafa rætt við Maresca síðan hann yfirgaf Chelsea. (TalkSport)

Guardiola ætlar að taka sér frí í eitt ár og taka síðan við landsliðsþjálfarastöðu. (Sport)

Xabi Alonso vill fá sóknarmanninn Igor Thiago (24) til Chelsea frá Brentford. Brasilíumaðurinn er með 22 úrvalsdeildarmörk á tímabilinu. (CaughtOffside)

Áhugi Barcelona á argentínska sóknarmanninum Julian Alvarez (26) og mun í staðinn eltast við brasilíska framherjann Joao Pedro (24) hjá Chelsea. (Mundo Deportivo)

Benfica vill fá Marco Silva, stjóra Fulham, til að taka við eftir að Jose Mourinho tekur við Real madrid. Rúben Amorim, fyrrum stjóri Manchester United, kemur einnig til greina hjá Benfica. (A Bola)

Argentínski framherjinn Paulo Dybala (32) hjá Roma er opinn fyrir því að fara í ensku úrvalsdeildina í sumar. (Sky Sports)

Chelsea, Liverpool og Manchester United hafa áhuga á Jarrod Bowen (29) sem gæti verið seldur frá West Ham af fjárhagsástæðum ef Hamrarnir falla. (Guardian)

Atletico Madrid og Borussia Dortmund vilja fá danska miðjumanninn Matt O'Riley (25) frá Brighton. Roberto De Zerbi stjóri Tottenham er líka aðdáandi leikmannsins. (TeamTalk)

Real Madrid íhugar að selja úrúgvæska miðjumanninn Federico Valverde (27) í sumar. (Mundo Deportivo)

Áhugi Everton á Dario Osorio (22), síleskum kantmanni Midtjylland í Danmörku, hefur ólíklega áhrif á að samkomulag náist um að kaupa Jack Grealish (30) frá Manchester City. Grealish var hjá Everton á láni á tímabilinu. (Football Insider)

Everton hefur endurnýjað áhuga á Abdul Fatawu (22), framherja Leicester og Gana. (TeamTalk)
Slapp
banner
banner