Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   mið 20. maí 2026 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hættu við að heiðra tvær goðsagnir á Hlíðarenda
Óli Jó og Pétur Péturs.
Óli Jó og Pétur Péturs.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik Vals og Breiðabliks átti samkvæmt heimildum Fótbolta.net að heiðra þá Ólaf Jóhannesson og Pétur Pétursson fyrir vel unnin störf í íslenskum fótbolta.

Þeir áttu að fá Gullmerki KSÍ sem er ein æðsta viðurkenning sem sambandið veitir. Ákveðið hafði verið að veita þeim viðurkenninguna á Hlíðarenda þar sem þeir báðir náðu frábærum árangri, Ólafur sem þjálfari karlaliðsins og Pétur sem þjálfari kvennaliðsins.

Það var hins vegar hætt við að veita viðurkenninguna á sunnudag, með mjög skömmum fyrirvara. Samkvæmt heimildum Fótbolta kom meðlimur í stjórn Vals í veg fyrir að athöfnin ætti sér stað þennan dag á Hlíðarenda.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net átti allt að hafa verið klappað og klárt, samþykki náðst við alla aðila í vetur og Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, var klár í að veita þjálfurunum viðurkenninguna, en ekkert varð af því að þeir fengju Gullmerkið fyrir leikinn á sunnudag.

Ólafur Jóhannesson var mjög farsæll á sínum þjálfaraferli, hann gerði Val að Íslandsmeisturum 2017 og 2018 eftir að hafa gert liðið að bikarmeisturum 2015 og 2016. Áður hafði hann gert FH þrisvar sinnum að Íslandsmeisturum og einu sinni að bikarmeisturum. Hann var þá þjálfari karlalandsliðsins á árunum 2007-2011. Ólafur var látinn fara frá Val eftir tímabilið 2019, fékk þá ekki nýjan samning, en sneri aftur sem bráðabirgðaþjálfari á miðju tímabili 2022.

Pétur átti farsælan feril sem fótboltamaður, lék 41 landsleik og skoraði ellefu mörk í landsliðstreyjunni og raðaði inn mörkum hjá m.a. ÍA, Feyenoord og KR á sínum ferli. Hann vann titla með ÍA sem leikmaður og varð hollenskur bikarmeistari með Feyenoord. Hann gerði kvennalið fjórum sinnum að Íslandsmeisturum og liðið varð tvívegis bikarmeistari undir hans stjórn. Árið 2000 gerði hann karlalið KR að Íslandsmeisturum og hann var aðstoðarþjálfari Ólafs með landsliðið á sínum tíma. Pétur var látinn fara frá Val eftir tímabilið 2024.
Slapp
banner
banner