20.06.09 - 20:20
Magnús Már Einarsson
Freddie Sears til Crystal Palace á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Crystal Palace hefur náð samkomulagi um að fá Freddie Sears framherja West Ham United á láni á næstu leiktíð.
Gianfranco Zola, stjóri West Ham, vill að Sears öðlist meiri reynslu og nokkur félög í ensku Chamipionship deildinni sýndu áhuga á að fá leikmanninn á láni.
Þar á meðal voru Sheffield Wednesday og Peterborough United en nú er ljóst að Sears mun fara til Crystal Palace.
Sears, sem er 19 ára, kom við sögu í 22 leikjum á síðustu leiktíð en lánaðist ekki að skora í þeim.

Heimild: Sky