Fotbolti.net
20.06.11 - 07:18
Magnús Már Einarsson

Victor Obinna til Lokomotiv Moskvu (Staðfest)

Victor Obinna til Lokomotiv Moskvu (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nígeríski framherjinn Victor Obinna hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Lokomotiv Moskvu í Rússlandi.
Þessi 24 ára gamli leikmaður kemur frítt til Lokomotiv eftir að samningur hans við Inter rann út.

Á síðasta tímabili var Obinna á láni hjá West Ham en hann var einnig í láni hjá Malaga í tvö tímabil á sínum tíma.

Galatasaray í Tyrklandi hafði einnig áhuga á leikmanninum en Lokomotiv hafði betur í baráttunni.

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.