Fotbolti.net
20.06.17 - 21:52
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Róbert: Gerum stóran rauðan kross á fyrri umferðina

Auglýsing
Það hefur lítið gengið upp hjá Grindavík í undanförnum leikjum

Það hefur lítið gengið upp hjá Grindavík í undanförnum leikjum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hertz
Róbert Haraldsson, þjálfari Grindavíkur var að vonum ósáttur við 5-0 tap gegn Breiðablik en hann tekur þó jákvæða punkta úr leik liðsins í kvöld.

<i>„Ég er mjög sáttur með fyrstu fjörtíu hjá okkur. Við lögðum upp með að liggja aðeins til baka þó við hefðum vindinn í okkur og sækja svo hratt á Blikana. Þetta hefur verið svolítið sagan hjá okkur, við erum ekki alveg nógu fókuseraðar rétt fyrir hlé og fáum á okkur tvö mörk sem klára leikinn,\"</i> sagði Róbert.

Rilany Da Silva, annar brasilísku leikmanna Grindavíkur fór útaf vegna meiðsla í kvöld.

<i>„Þetta er í náranum held ég. Við höfum verið í skakkaföllum núna og það vantaði einar fimm í dag en það kemur maður í manns stað. Ég sagði við stelpurnar að við gerum bara einn stóran rauðan kross á fyrri umferðina núna. Þetta er búið að vera mjög erfitt hjá okkur. Það er bara nýtt mót framundan hjá okkur.\"</i>

Thaisa Moreno, hinn brasilíski leikmaður Grindavíkur hefur verið lengi frá vegna meiðsla og er ekki von á henni í næstu leikjum.

<i>„Hún kemur til baka í ágúst. Það voru smá læknamistök og rangar upplýsingar frá læknum og hún fór að æfa á fullu, á meiðslum sem hún átti ekki að stíga í fótinn. Það seinkaði henni um mánuð.\"</i>
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.