20.07.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Árni Ingi Pjetursson í Gróttu (Staðfest)

Árni í leiknum í gærkvöldi.

Mynd: Helgi Valberg

Árni í leiknum í gærkvöldi.

Mynd: Helgi Valberg
Árni Ingi Pjetursson fékk í gær leikheimild með Gróttu og hann byrjar af krafti með félaginu því hann skoraði þrennu og lagði upp eitt mark í 4-0 sigri liðsins á Árborg í gærkvöldi.
Árni Ingi sem er uppalinn KR-ingur hefur verið á mála hjá Val undanfarin tvö ár en ekkert spilað með liðinu í sumar.
Í vor var Árni Ingi nálægt því að fara í Fjölni en ekkert varð af því. Árni sem getur leikið allar stöður framarlega á vellinum kom hingað til lands í fyrra eftir að hafa leikið í Bandaríkjunum.
Árni varð yngsti leikmaðurinn í efstu deild frá upphafi þegar hann kom inn á í leik með KR gegn Val í september 1994.
Árni Ingi lék alls 20 leiki með U-17 ára landsliðinu á sínum tíma og 26 leiki með U-19 ára landsliði Íslands en hann hefur leikið flesta U-19 ára landsleiki fyrir Íslands hönd.