Fotbolti.net
20.07.07 - 11:41
Magnús Már Einarsson

Ismael Urzaiz til Ajax (Staðfest)

Ismael Urzaiz til Ajax (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn reyndi Ismael Urzaiz hefur gert eins árs samning við Ajax en þessi 35 ára gamli leikmaður yfirgaf Athletic Bilbao í lok síðustu leiktíðar.
,,Fyrir mér er það mjög aðlaðandi að spila í Meistaradeildinni aftur," sagði hinn 35 ára gamli Urzaiz við spænska fjölmiðla.

,,Ég hef talað við þjálfarann (Henk) Ten Cate og hann hefur sannfært mig um að taka þátt í þessu ævintýri. Ég er mjög spenntur fyrir verkefninu og það var næstum ómögulegt að hafna þessu tilboði," bætti Urzaiz við.

Ten Cate hefur áhuga á að fleiri Spánverjum og svo gæti farið að Xabi Prieto leikmaður Real Sociedad komi til Ajax á næstunni.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.