Fotbolti.net
20.07.07 - 12:16
Magnús Már Einarsson

DJ Campbell til Leicester (Staðfest)

DJ Campbell til Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leicester hefur haft betur í baráttu við Watford og keypt framherjann DJ Campbell frá Birmingham fyrir upphæð sem gæti orðið 2,1 milljónir punda.
Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur gert fjögurra ára samning við Leicester og er hann tólfti leikmaðurinn sem að Martin Allen fær til liðsins í sumar.

Campbell sló í gegn með utandeildarliðið Yeading í janúar árið 2006 þegar hann skoraði tvívegis í sigri liðsins á Sunderland í enska bikarnum.

Í kjölfarið keypti Birmingham hann og skoraði Campbell tólf mörk þegar að liðið komst upp í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.