Fotbolti.net
20.07.07 - 14:52
Magnús Már Einarsson

Ivan Helguera til Valencia (Staðfest)

Ivan Helguera til Valencia (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Valencia hefur fengið miðvörðinn Ivan Helguera frá Real Madrid en þetta staðfestu félögin í dag. Þessi 32 ára gamli leikmaður losaði sig undan samningi hjá Spánarmeisturunum og skrifaði undir þriggja ára samning við Valencia.
Helguera sem átti eitt ár eftir af samningi sínum við Real Madrid vann spænsku deildina þrívegis með liðinu og Meistaradeildina tvívegis eftir að hann kom frá Espanyol árið 1999.

Helguera var ekki í náðinni hjá Fabio Capello í upphafi síðasta tímabils en kom síðan inn í liðið og var 21 sinni í byrjunarliði.

Bernd Schuster sem tók við Real Madrid á dögunum hefur hins vegar leyft Helguera að fara eftir að hafa fengið tvo miðverði í sumar, Christoph Metzelder og Pepe.

Valencia var í leit að reynslumiklum miðverði eftir að Roberto Ayala gekk til liðs við Real Zaragoza og nú hefur liðið klófest Helguera.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.