20.07.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Ricardo Oliveira til Al-Jazira (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Al-Jazira frá Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum hefur keypt brasilíska framherjann Ricardo Oliveira á tólf milljónir punda.
Talið er að kaupverðið skiptist á milli Real Zaragoza og Real Betis en félögin áttu bæði hluta í Oliveira.
Oliveira, sem er 29 ára, á ellefu landsleiki að baki en hann hefur ákveðið að halda til Al-Jazira þar sem að samningurinn sem félagið bauð var það hár að erfitt var að hafna honum.
Al-Jazira er í eigu Mansur Ben Zayed al-Nahyan en hann er í fjölskyldunni í Abu Dhabi sem á Manchester City.

Heimild: Sky