Fotbolti.net
20.07.09 - 17:18
Magnús Már Einarsson

Nottingham Forest fær Chris Gunter frá Tottenham (Staðfest)

Nottingham Forest fær Chris Gunter frá Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nottingham Forest hefur keypt Chris Gunter frá Tottenham á 1,75 milljónir punda.
Þessi 19 ára gamli bakvörður hefur gert fjögurra ára samning við Nottingham Forest.

Gunter þekkir til hjá Nottingham Forest því að hann var í láni hjá félaginu í tvo mánuði á síðustu leiktíð.

Nottingham Forest hefur einnig keypt miðjumanninn Paul McKenna frá Preston á 750 þúsud pund.

Mckenna, sem er 31 árs, hefur gert þriggja ára samning við Nottingham Forest.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.