Fotbolti.net
20.07.09 - 15:38
Magnús Már Einarsson

Kári Árnason til Plymouth (Staðfest)

Kári Árnason til Plymouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Kári Árnason hefur gert eins árs samning við Plymouth Argyle sem leikur í næstefstu deild á Englandi.
Kári var til reynslu hjá félaginu á dögunum og þótti standa sig vel en hann hefur verið í leit að félagi eftir að hafa fengið leyfi til að yfirgefa AGF í Danmörku.

,,Að komast til Englands hefur alltaf verið markmið mitt,\" sagði Kári á heimasíðu Plymouth í dag.

,,Ég sagði umboðsmanni mínum hvað markmiðið var og hann fann þennan leik þar sem að ég spilaði með öðrum leikmönnum sem voru á reynslu.\"

Kári kom til AGF frá Djurgarden í janúar árið 2007 en þessi 26 ára gamli miðjumaður lék 54 leiki á ferli sínum með danska félaginu.

Áður lék Kári með Víkingi R. en á ferli sínum hefur hann leikið fimmtán landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim eitt mark.

Heimild: Heimasíða Plymouth

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.