Fotbolti.net
20.07.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Peter Gulacsi frá Liverpool (Staðfest)

Peter Gulacsi frá Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hull City í ensku Championship deildinni hefur fengið markvörðinn Peter Gulacsi á láni frá Liverpool.

Þessi 21 árs gamli Ungverji hefur ekki ennþá leikið mótsleik með aðalliði Liverpool.
Á síðasta tímabili var Gulacsi varamarkvörður Jose Reina hjá Liverpool eftir að Brad Jones fór til Derby á láni.

Eftir að Alexander Doni kom frá Roma á dögunum hefur Kenny Dalglish stjóri Liverpool nú ákveðið að leyfa Gulacsi að fara til Hull á láni.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.