Fotbolti.net
20.07.11 - 13:02
Hörður Snævar Jónsson

George Boateng til Nottingham (Staðfest)

George Boateng til Nottingham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nottingham Forest hefur krækt í gamla brýnið George Boateng sem skrifaði undir eins árs samning.
Þessi duglegi miðjumaður spilaði fyrst á Englandi árið 1997 þegar hann fór til Coventry áður en hann fór til Aston Villa.

Hann lék síðar með Middlesbrough og Hull áður en hann hélt til Grikklands.

Þessi 35 ára gamli leikmaður þekkir Steve McClaren stjóra Nottingham en þeir unnu saman hjá Middlesbrough.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.