Fotbolti.net
20.07.11 - 14:01
Magnús Már Einarsson

Diego Capel til Sporting Lissabon (Staðfest)

Diego Capel til Sporting Lissabon (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalska félagið Sporting Lissabon hefur náð samkomulagi um að kaupa kantmanninn Diego Capel frá Sevilla á Spáni.
Capel, sem er 23 ára, hefur leikið með aðalliði Sevilla frá því árið 2007 en á síðasta tímabili var hann fyrir aftan Jesus Navas og Diego Perotti í baráttunni um sæti í liðinu.

Sevilla hefur núna ákveðið að selja Capel en í staðinn ætlar félagið að reyna að krækja í Giovani dos Santos frá Tottenham.

Dos Santos, sem var í láni hjá Racing Santander á síðasta tímabili, er eftirsóttur en Valencia og Udinese hafa einnig áhuga á honum.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.