Fotbolti.net
20.07.11 - 12:45
Hafliði Breiðfjörð

Bjarnólfur og Tómas Ingi taka við Víkingi (Staðfest)

Bjarnólfur Lárusson tekur við Víkingi.

Bjarnólfur Lárusson tekur við Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Víkingur staðfesti nú rétt í þessu að Bjarnólfur Lárusson hefur verið ráðinn þjálfari liðsins og Tómas Ingi Tómasson verður honum til aðstoðar eins og Fótbolti.net greindi fyrstur miðla frá í gær.

Hér að neðan má sjá tilkynningu Víkings en þeir taka við af Andra Marteinssyni og Ólafi Ólafssyni sem samkomulag náðist við að lætu af störfum í gær eftir lélegt gengi í sumar.
Fréttatilkynning:

Bjarnólfur Lárusson var í dag ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Víkingi út yfirstandandi tímabil. Bjarnólfur sem er uppalinn Vestmannaeyingur lék upp alla yngri flokka með ÍBV. Hann spilaði 130 mfl. leiki með ÍBV og varð tvisvar sinnum Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari með þeim. Síðar spilaði hann með meistaraflokki KR í þrjú ár. Bjarnólfur á að baki fjölda leikja með yngri landsliðum Íslands og þá spilaði hann í 4 ár í Bretlandi með Hibernian, Walsall og Scunthorpe.

Bjarnólfur hefur náð frábærum árangri með 2. flokk félagsins sem er sem stendur í efsta sæti A riðils Íslandsmótsins. Sá árangur Bjarnólfs er hvatinn að því að stjórn knattspyrnudeildar hefur nú fengið hann til þess að taka við meistaraflokki félagsins.

Aðstoðarmaður Bjarnólfs verður Tómas Ingi Tómasson sem var mikill markaskorari á árum áður með ÍBV, KR, Þrótti og Grindavík hér á landi auk þess sem hann spilaði með FC Berlin, Raufoss og AGF sem atvinnumaður. Tómas Ingi er aðstoðarmaður Eyjólfs Sverrissonar hjá U21 árs landsliðs Íslands.

Stjórn knattspyrnudeildar býður Bjarnólf og Tómas Inga velkomna til starfa og væntir mikils af þeim í því verkefni sem er framundan.

Knattspyrnudeild Víkings
20.07.2011
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.