20.07.11 - 19:36
Magnús Már Einarsson
Fernando Muslera til Galatasaray (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Tyrkneska félagið Galatasaray hefur keypt markvörðinn Fernando Muslera frá Lazio.
Muslera skrifaði undir fimm ára samning við Galatasaray en hann mun fá tvær milljónir evra í árslaun.
Muslera skrifaði undir fimm ára samning við Galatasaray en hann mun fá tvær milljónir evra í árslaun.
Þessi 25 ára gamli leikmaður stendur í ströngu með liði Úrúgvæ þessa dagana en liðið er komið í úrslit í Suður-Ameríku keppninni í Argentínu.
Muslera átti mjög góðan leik með Úrúgvæ gegn Argentínu síðastliðinn laugardag þar sem hann varði meðal annars vítaspyrnu frá Carlos Tevez í vítaspyrnukeppninni.
Muslera átti mjög góðan leik með Úrúgvæ gegn Argentínu síðastliðinn laugardag þar sem hann varði meðal annars vítaspyrnu frá Carlos Tevez í vítaspyrnukeppninni.
Heimild: Reuters
