Fotbolti.net
20.07.11 - 16:32
Elvar Geir Magnússon

Þórir Guðjónsson lánaður til Leiknis frá Val (Staðfest)

Þórir Guðjónsson lánaður til Leiknis frá Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknir í Breiðholti hefur fengið Þóri Guðjónsson lánaðan frá Val. Þórir lék mjög vel með Val á undirbúningstímabilinu en hann hefur komið við sögu í þremur leikjum í Pepsi-deildinni í sumar.
Þórir er tvítugur sókndjarfur leikmaður sem hefur spilað á vængnum.

Í fyrra lék hann 12 leiki með Val í deild og bikar. Þórir verður í leikmannahópi Leiknis annað kvöld þegar liðið mætir HK í botnbaráttuslag í 1. deildinni.

Leiknir er í harðri botnbaráttu en liðið vann sinn fyrsta leik í sumar gegn KA um síðustu helgi.

Heimild: Leiknir.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.